11.04.13 - 14:31
Magnús Már Einarsson
Teitur Þórðar tekur við liði í norsku þriðju deildinni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Teitur Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Funnefoss/Vormsund í norsku þriðju deildinni.
Í byrjun árs 2012 var greint frá því að Teitur myndi stýra liði Barasat í nýrri ofurdeild í Indlandi en argentínski framherjinn Hernan Crespo átti meðal annars að spila með liðinu.
FIFA hefur hins vegar ekki gefið grænt ljós á ofurdeildina og því hefur Teitur ákveðið að stýra Funnefoss/Vormsund þangað til að deildin í Indlandi fær leyfi til að byrja.
Teitur stýrði síðast Vancouver Whitecaps frá 2008-2011 en síðasta árið undir hans stjórn lék liðið í MLS deildinni.
Hinn 61 árs gamli Teitur þjálfaði síðast á Íslandi 2006 og 2007 þegar hann var þjálfari hjá KR.
Á ferli sínum hefur Teitur einnig þjálfað landsið Eistlands, Flora Tallinn, Skövde, Brann, Lyn, Grei, Lilleström, Lyn og Ull/Kisa.