11.04.14 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Michael Jónsson í Grindavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bakvörðurinn Michael J. Jónsson hefur gengið til liðs við Grindavík.
Michael er uppalinn Grindvíkingur en hann hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Reyni Sandgerði. Þá hefur hann einnig leikið með Ægi og Njarðvík á ferli sínum.
Michael lék síðast með Grindvíkingum í efstu deild árið 2008.
Samtals hefur þessi þrítugi leikmaður skorað 17 mörk í 119 deildar og bikarleikjum á ferlinum.

Eldri bróðir Michael er Ray Anthony Jónsson bakvörður Keflvíkinga sem lék lengi með Grindvíkingum.
Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, segir möguleika á að liðið fái einn leikmann til viðbótar fyrir mót en það sé þó óljóst.