Fotbolti.net
11.04.16 - 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Palermo skiptir um þjálfara í níunda sinn (Staðfest)

Ballardini er nýr þjálfari Palermo.

Ballardini er nýr þjálfari Palermo.

Canon

Mynd: Getty Images

Walter Novellino hefur verið rekinn sem þjálfari Palermo og er Davide Ballardini tekinn við í annað sinn á þessu tímabili.

Þetta er í níunda skipti á tímabilinu sem Palermo skiptir um þjálfara, en félagið er í harðri fallbaráttu við nýliða Frosinone og Carpi.
Beppe Iachini er tvisvar sinnum búinn að stýra liðinu á þessu tímabili en þar að auki hafa Fabio Viviani, Giovanni Tedesco, Giovanni Bosi og Guillermo Schelotto stýrt liðinu, auk hins nýrekna Novellino og Ballardini sem er að taka við félaginu í annað sinn.

Maurizio Zamparini, eigandi félagsins, er af mörgum talinn vera of skapbráður og furðulegur til að eiga knattspyrnufélag en gengi Palermo hefur þó verið mjög gott undir honum þrátt fyrir tíð þjálfaraskipti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.