Queiroz hættur með Egyptaland (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Hinn 69 ára gamli Carlos Queiroz er ekki lengur landsliðsþjálfari Egyptalands eftir að hafa mistekist að koma þjóðinni á HM í Katar.
Egyptaland spilaði úrslitaleik við Senegal um laust sæti á mótinu í Katar en þurfti að sætta sig við tap í vítaspyrnukeppni.
Þetta var í annað sinn á stuttum tíma sem Egyptar tapa stórleik gegn Senegal en sá fyrri kom í úrslitaleik Afríkukeppninnar í janúar.
Það var því sameiginleg ákvörðun knattspyrnusambands Egyptalands og Queiroz að sá síðarnefndi myndi láta af störfum.
Queiroz er fyrrum aðstoðarþjálfari Sir Alex Ferguson hjá Manchester United og þjálfaði einnig Real Madrid árið 2003.
Queiroz tók við Egyptalandi árið 2021 en hann hafði fyrir það þjálfað landslið Portúgals, Íran og Kólumbíu.
