Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast
Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs Stjarnan
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London.
Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh
Benoný Breki: Hann er besti miðjumaðurinn í deildinni
   mán 11. apríl 2022 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Erum hungraðir eftir vonbrigða tímabil í fyrra"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líst allt í lagi á þessa spá, þetta er kannski eðlilegt miðað við gengi okkar í fyrra en við ætlum okkur stærri hluti - það er ekkert flóknara en það. Ég held að það sé alveg klárt að við ætlum að berjast um þá titla sem eru í boði," sagði Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, í viðtali við Fótbolta.net. Tilefnið var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en FH er spáð fjórða sæti í sumar.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 4. sæti: FH

„Okkur hefur gengið það vel á þessu ári, ekki búnir að tapa leik á þessu ári, búnir að fá nýja og flotta leikmenn sem hafa smollið inn í þetta, frábært þjálfarateymi og við erum búnir að æfa rosalega vel í allan vetur. Við erum spenntir og hlökkum til þess að byrja."

Hver er munurinn á milli ára hjá FH en undirbúningstímabilið í fyrra gekk brösulega.

„Það eru margir þættir sem koma bara með nýjum þjálfurum og svoleiðis. Við vorum óheppnir með meiðsli í fyrra, menn að detta í tognanir hér og þar og sem þetta var sem verst voru 5-6 góðir leikmenn frá og dampurinn datt aðeins úr þessu. Síðan erum við líka hungraðir eftir vonbrigða tímabil í fyrra. Við höfum fengið fullt af flottum leikmönnum og ungu strákarnir eru reynslunni ríkari eftir tækifærin sem þeir fengu í fyrra," sagði Matti.

Viðtalið í heild má nálgast í spilaranum að ofan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Athugasemdir
banner
banner