Fotbolti.net
11.05.13 - 21:12
Daníel Freyr Jónsson

Paul Scholes hættir eftir tímabilið (Staðfest)

Paul Scholes.

Paul Scholes.

Canon

Mynd: Getty Images

Englendingurinn Paul Scholes, leikmaður Manchester United, mun leggja skónna á hilluna í lok leiktíðar.
Upphaflega hætti þessi 38 ára gamli miðjumaður árið 2011, en skórnir endust einungis í hálft ár á hillunni áður en hann tók þá óvænt fram að nýju.

Hann mun nú hinsvegar endanlega hætta í sumar eftir að hafa leikið í 19 ár með aðalliði United. Lék hann sinn fyrsta leik tímabilið 1993-94 og hefur síðan þá leikið 466 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skorað í þeim 102 mörk. Hefur honum verið hrósað af mörgum frægustu leikmönnum heims sem einn besti leikmaður sinnar kynslóðar.

,,Paul er sannarlega ótrúlegur leikmaður. Hann var alltaf mjög skuldbundinn félaginu og það voru forréttindi að fá að vinna með honum í svona mörg ár,\" sagði Sir Alex Ferguson, stjóri United, um Scholes í tilkynningu frá félaginu nú í kvöld.

,,Hann mun spila mað United gegn Swansea á sunnudaginn og eignast sína ótrúlegu, en verðskulduðu, 11. Englandsmeistaramedalíu.\"

Scholes lék með United allann sinn feril og hefur í allt leikið yfir 700 leiki í öllum keppnum.

Auk þess að hafa unnið úrvalsdeildina alls 11 sinnum, þá varð hann tvisvar Evrópumeistari og þrisvar bikarmeistari með félaginu og eru fáir enskir eikmenn í sögunni sem státa af öðru eins bikarsafni.

Leikurinn á morgun verður því afar tilfinningaþrunginn fyrir United, en eins og flestir vita mun Ferguson láta af störfum sem stjóri liðsins í lok leiktíðar. Leikurinn gegn Swansea verður því kveðjustund fyrir bæði Ferguson og Scholes þar sem um er að ræða síðasta heimaleik United á leiktíðinni og er vel við hæfi að liðið fái Englandsmeistaratitilinn afhentan að honum loknum.

Heimild: Heimasíða Man Utd

Paul Scholes hættir eftir tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.