11.05.16 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Einar Logi í Kára (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Logi Einarsson hefur gengið til liðs við Kára á Akranesi en hann mun spila með liðinu í 3. deildinni í sumar.
Einar Logi hefur verið í námi í Bandaríkjunum í vetur en í fyrra spilaði hann með HK í 1. deildinni.
Einar Logi hefur verið í námi í Bandaríkjunum í vetur en í fyrra spilaði hann með HK í 1. deildinni.
Einar er 24 ára gamall varnar og miðjumaður en hann spilaði ellefu leiki með HK í fyrra áður en hann fór út til Bandaríkjanna.
Einar er uppalinn hjá ÍA en hann lék 78 deildar og bikarleiki með liðinu áður en hann fór til HK í fyrra.
Árið 2014 spilaði Einar einnig þrjá leiki á láni með Kára.
Einar er uppalinn hjá ÍA en hann lék 78 deildar og bikarleiki með liðinu áður en hann fór til HK í fyrra.
Árið 2014 spilaði Einar einnig þrjá leiki á láni með Kára.
