11.05.22 - 11:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alexandra lánuð í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Mirko Kappes

Mynd: Mirko Kappes

Eintracht Frankfurt hefur lánað Alexöndru Jóhannsdóttur til Breiðabliks og gildir lánssamningurinn út júní mánuð.
Alexandra fór til Frankfurt frá Breiðabliki fyrir einu og hálfu ári síðan en markmiðið með lánssamningnum er að Alexandra komist í leikform.

Alexandra er miðjumaður sem er 22 ára gömul. Á heimasíðu Frankfurt kemur fram að Alexandra óskaði eftir því að komast á lán til að vera í leikformi þegar EM kvenna fer fram í júlí.
Alexandra missir af leik Frankfurt gegn Werder Bremen en þar sem allir aðrir miðjumenn liðsins eru til taks var félagið tilbúið að hleypa Alexöndru í burtu á láni.
Frankfurt þarf að ná betri úrslitum en Potsdam í lokaumferð þýsku deildarinanr til að ná Meistaradeildarsæti.