Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. maí 2022 18:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið KA og FH: Hallgrímur Mar og Lasse Petry byrja
Lasse Petry leikur sinn fyrsta leik fyrir FH í kvöld. Hér er hann í leik með Val gegn KA.
Lasse Petry leikur sinn fyrsta leik fyrir FH í kvöld. Hér er hann í leik með Val gegn KA.
Mynd: Hulda Margrét
Hallgrímur Mar hefur verið að glíma við meiðsli. Hann byrjar gegn FH-ingum.
Hallgrímur Mar hefur verið að glíma við meiðsli. Hann byrjar gegn FH-ingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 19:15 hefst leikur KA og FH á Dalvíkurvelli. KA-menn eru enn taplausir og eru með tíu stig. FH er aðeins með fimm stig til þessa.

Beinar textalýsingar:
18:00 ÍBV - KR
19:15 Breiðablik - Stjarnan
19:15 KA - FH
19:15 Valur - ÍA

Hjá KA snýr Dusan Brkovic til baka úr leikbanni og hann kemur inn fyrir Olek Bykov sem er núna í leikbanni. Þá kemur Hallgrímur Mar Steingrímsson inn í liðið fyrir Svein Margeir Hauksson. Hallgrímur Mar er að stíga upp úr meiðslum.

Hjá FH er Lasse Petry kominn með leikheimild og hann byrjar. Davíð Snær Jóhannsson, annar nýr leikmaður liðsins, byrjar á bekknum í þetta skiptið.

Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
7. Daníel Hafsteinsson
8. Sebastiaan Brebels
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
16. Bryan Van Den Bogaert
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
27. Þorri Mar Þórisson

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Ástbjörn Þórðarson
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
7. Steven Lennon
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson
16. Guðmundur Kristjánsson
19. Lasse Petry
20. Finnur Orri Margeirsson
23. Máni Austmann Hilmarsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner