Fotbolti.net
11.05.22 - 10:47
Elvar Geir Magnússon

Spænskur sóknarleikmaður í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Luis Romero.

Luis Romero.

Canon

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska leikmanninn Luis Romero un að leika með liðinu í sumar.

Luis, sem er 23 ára gamall, er sagður í fréttatilkynningu frá Ólafsvíkingum vera eldfljótur og fjölhæfur leikmaður sem getur leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum.
Hann hefur leikið víða á vellinum og m.a. verið í unglingaliðum Real Madrid en var síðast hjá AD Parla sem spilar í spænsku fimmtu deildinni.

Hann er kominn með leikheimild og er væntanlegur til landsins um helgina.

Ólafsvíkingar féllu úr Lengjudeildinni í fyrra og töpuðu 1-3 fyrir Völsungi í 1. umferð 2. deildarinnar. Liðið heimsækir Ægi í Þorlákshöfn á föstudagskvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.