Fotbolti.net
11.06.13 - 08:00
Daníel Freyr Jónsson

Benfica kaupir Lazar Markovic (Staðfest)

Lazar Markovic.

Lazar Markovic.

Canon

Mynd: Getty Images

Benfica hefur keypt hinn bráðefnilega Lazar Markovic frá Partizan Belgrad í Serbíu.

Fréttirnar koma nokkuð á óvart, þar sem Partizan hafði áður gefið það út að Markovic hefði verið seldur til enska liðsins Chelsea.
Partizan hélt því einnig fram að Markovic myndi samstundis verða lánaður til Benfica í tvö ár.

Benfica tilkynnti hinsvegar á heimasíðu sinni í gær um kaupin á Markovic, sem skrifaði undir fimm ára samning, og að Chelsea kæmi þar hvergi nálægt.

Markovic, sem er 19 ára gamall miðjumaður, hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið sjö landsleiki með Serbíu og þykir einn efnilegasti miðjumaður Evrópu.

Hann steig sín fyrstu skref með aðalliði Partizan fyrir tveimur árum og skoraði 13 mörk í 46 deildarleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.