11.06.13 - 16:51
Magnús Már Einarsson
Jesus Navas til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gengið frá kaupunum á kantmanninum Jesus Navas frá Sevilla.
Þessi 27 ára gamli leikmaður er búinn að standast læknisskoðun hjá Manchester City og mun hefja æfingar með liðinu eftir Álfukeppnina í Brasilíu.
Navas hefur leikið allan sinn feril með Sevilla þar sem hann hefur skorað 34 mörk í 393 leikjum.

,,Þetta er spennandi verkefni hjá Manchester City og þetta er rétta augnablikið fyrir mig til að taka þetta skref. Ég er mjög ánægður með þetta tækifæri og ákvörðun mína,\" sagði Navas.
,,Ég er að ganga til liðs við frábært félag og ég vil halda áfram að bæta leik minn hér. Félagið hefur sýnt mikla trú á mér og ég vil endurgjalda það á vellinum.\"
Navas er annar leikmaðurinn sem Manchester City kaupir í sumar en í síðustu viku krækti félagið í miðjumanninn Fernandinho frá Shakhtar Donetsk.

Heimild: Heimasíða Manchester City