Fotbolti.net
11.06.14 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Diouf og Teixeira til Stoke (Staðfest)

Mame Biram Diouf.

Mame Biram Diouf.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur gert fjögurra ára samning við Mame Biram Diouf fyrrum framherja Manchester United.

Þessi 26 ára gamli Senegali mun ganga formlega í raðir Stoke þegar samningur hans hjá Hannover rennur út í lok mánaðarins.

Diouf var í herbúðum Manchester United frá 2009 til 2012 en náði aldrei að festa sig í sessi.
Stoke hefur einnig fengið varnarmannin Dionatan Teixeira í sínar raðir. Teixeira er Slóvaki en Stoke kaupir hann frá Banska Bystrica í heimalandinu.

Stoke hefur þar með fengið fjóra nýja leikmenn í sínar raðir í sumar en félagið hafði áður fengið varnarmanninn Phil Bardsley frá Sunderland og miðjumanninn Steve Sidwell frá Fulham.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.