11.06.14 - 10:53
Alexander Freyr Tamimi
Mancini rekinn frá Galatasaray (Staðfest)

Mancini er hættur með Galatasaray.

Mynd: Getty Images

Mancini er hættur með Galatasaray.

Mynd: Getty Images
Tyrkneska stórliðið Galatasaray hefur tekið sig til og rekið þjálfarann Roberto Mancini eftir einungis eitt ár í starfi.
Einungis eru örfáir dagar síðan Ítalinn greindi frá því að hann væri ekki á förum frá Galatasaray, þar sem hann ætti enn tvö ár eftir af samningi sínum.

Mancini tókst ekki að vinna tyrknesku deildina með Galatasaray á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn, en gerði liðið að bikarmeisturum og komst upp úr riðlinum í Meistaradeildinni, þar sem liðið tapaði gegn Chelsea í 16-liða úrslitum.
Nú er þó ljóst að hann verður ekki áfram við stjórnvölinn í Tyrklandi, en hann hefur verið sterklega orðaður við sína gömlu félaga í Lazio.
Mancini á að baki farsælan þjálfaraferil með Fiorentina, Lazio, Inter, Manchester City og nú síðast Galatasaray.
Samkvæmt heimasíðu tyrkneska félagsins er ákvörðunin tekin í sameiningu, sem verður að teljast undarlegt miðað við nýleg ummæli Mancini.

Heimild: Vefur Galatasaray