11.06.14 - 10:11
Ólafur Ingi Guðmundsson
Þórður Þórðar tekur tímabundið við kvennaliði ÍA (Staðfest)

Þórður Þórðarson hefur tekið upp þjálfaraúlpuna á ný.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þórðarson hefur tekið upp þjálfaraúlpuna á ný.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þórðarson fyrrverandi þjálfari meistaraflokks karla hjá knattspyrnufélagi ÍA hefur tekið tímabundið við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu.
Þessi ákvörðun er tekin að beiðni Magneu Guðlaugsdóttur þjálfara meistaraflokks kvenna hjá ÍA en ástæðan er veikindi barns hennar. Ekki er ljóst hve lengi Magnea verður í leyfi en ákvörðun um að leita til Þórðar er tekin í samráði við hana og Margréti Ákadóttur aðstoðarþjálfara sem hefur stýrt liðinu í fjarveru Magneu undanfarna tvo leiki.
Lið ÍA hefur byrjað illa frá því þær komu upp úr 1. deild kvenna í fyrra. Þær hafa tapað öllum fjórum fyrstu leikjum sínum í sumar og eru án stiga í næstneðsta sæti Pepsídeildar kvenna ásamt Aftureldingu.

Heimild: Heimasíða KFÍA