11.06.20 - 13:05
Elvar Geir Magnússon
Bologna kaupir Ara og lánar aftur í HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Ari Sigurpálsson verður með HK í Pepsi Max-deildinni í sumar. Ítalska félagið Bologna hefur keypt þennan spennandi sautján ára strák.
Ari hefur spilað með HK í æfingaleikjum að undanförnu og skemmtilegt verður að fylgjast með honum í Pepsi Max.
Hk er spáð 10. sæti í Pepsi Max-deildinni.

Tilkynning frá HK:
Sóknarmaðurinn Ari Sigurpálsson var lánaður með kauprétti til ítalska úrvalsdeildarliðsins Bologna síðastliðið haust. Bologna hefur nú ákveðið að ganga frá kaupum á þessum efnilega leikmanni.
Ari sem varð 17 ára í mars síðastliðnum lék sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deildinni haustið 2019 og varð þá yngsti HK-ingurinn til að koma við sögu í efstu deild.
Ari á nú þegar 20 leiki fyrir U15, U16, U17 og U18 ára landslið Íslands. Hjá Bologna spilaði Ari 12 leiki fyrir U17 ára liðið í vetur og kom þar að 12 mörkum, skoraði í þeim 4 mörk og átti 8 stoðsendingar.
Bologna lánar Ara strax til baka til HK og mun hann leika með HK í Pepsi Max deildinni í sumar.

Bologna kaupir Ara Sigurpálsson.
Posted by HK Fótbolti on Fimmtudagur, 11. júní 2020
Sóknarmaðurinn Ari Sigurpálsson var lánaður með kauprétti til ítalska...