Fotbolti.net
11.06.20 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

GG fær fimm (Staðfest) - Gylfi Örn og Milan Tasic

Gylfi Örn spilaði fjórtán leiki fyrir Grindavík, einn í efstu deild.

Gylfi Örn spilaði fjórtán leiki fyrir Grindavík, einn í efstu deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

GG, Golfklúbbur Grindavíkur, ætlar sér stóra hluti í 4. deildinni í sumar og var að styrkja sig með fimm leikmönnum.
GG fékk Victor Lucien Da Costa, Gylfa Örn Ámundínusarson Öfjörð, Hamid Haman Dicko, Maciek Maliszewski og Milan Tasic til liðs við sig.

Victor Da Costa kemur frá KH úr 3. deild yfir til GG og er fæddur árið 1988. Hann átti stóran þátt í að koma Magna Grenivík í 1. deild karla úr 3. deild frá 2014-2018.

Victor spilaði níu leiki fyrir KH á síðustu leiktíð en aðeins einn fyrir Njarðvík. Hann hefur samtals gert 11 mörk í 99 leikjum á Íslandi.

Gylfi Örn er uppalin Grindvíkingur fæddur 1994. Hann hefur spilað 8 leiki fyrir hönd GG auk þess að eiga leiki að baki fyrir Grindavík, Víði, Reyni Sandgerði, ÍR og Njarðvík.

Gylfi hefur skorað 2 mörk í 82 leikjum og er einn af fáum sem hefur afrekað það að eiga leiki að baki í öllum deildum hér á landi.

Hamid Dicko kemur frá KM í 4. deild yfir til GG og er fæddur árið 1984. Hamid hefur spilað 9 leiki fyrir KM.

Milan Tasic kemur frá Víði Garði og er fæddur 1988. Hann kom fyrst til landsins 2014 og hefur einnig spilað fyrir KF. Milan spilaði 58 leiki í deild og bikar fyrir Víði og skoraði 24 mörk.

Maciek Maliszewski er fæddur árið 1996 og kemur til GG frá pólsku félagi að nafni GKS Kolbudy. Hann eftir að spila sinn fyrsta leik á Íslandi á komandi tímabili.

Sigurður Elíasson þjálfari GG er með mikinn metnað fyrir því að koma liðinu upp í 3. deild.
Milan Tasic gæti skorað nokkur í fjórðu deildinni.

Milan Tasic gæti skorað nokkur í fjórðu deildinni.

Canon

Mynd: GG

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.