Fotbolti.net
11.06.20 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Haukar bæta við sig tveimur leikmönnum (Staðfest)

Birna og Eygló með Jakobi Leó, þjálfara Hauka.

Birna og Eygló með Jakobi Leó, þjálfara Hauka.

Canon

Mynd: Haukar

Kvennaboltinn
Kvennalið Hauka hefur bætt við sig tveimur leikmönnum fyrir átökin í 1. deild kvenna í sumar.
Eygló Þorsteinsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir út árið 2021 en hún er uppalin hjá Val. Þá hefur Birna Kristín Eiríksdóttir skrifað undir lánssamning við félagið en hún kemur frá Fylki.

Jakob Leó Bjarnason, þjálfari meistaraflokks kvenna, segir að koma þeirra Birnu og Eyglóar stækki hópinn og geri hann sterkari. „Við erum að fylla í þær stöður á vellinum sem við teljum þurfa meiri samkeppni í og þær munu koma með mikil gæði inn í hópinn."

Eygló, sem er fædd 2000, er varnarsinnaður miðjumaður með góðan leikskilning og að sögn Jakobs er hún þeim kostum gædd að vera hörð af sér og geta stýrt umferðinni vel á miðsvæðinu.

Birna Kristín, sem er einnig fædd 2000, er sóknarsinnaður miðjumaður sem býr yfir mikilli tækni og fer vel með boltann segir Jakob. „Hún er einstaklega lunkin í því að koma sjálfri sér í góðar stöður og hefur mikla hæfileika til að spila samherja sína í góð færi."

Eygló á að baki sex leiki með U17 ára landsliðinu og þrjá leiki með U19 en hún var á láni hjá HK/Víking í Pepsi-Max deildinni á síðustu leiktíð. Hún á að baki alls 16 leiki í efstu deild og níu leiki í Lengjudeildinni.

Birna á að baki átta leiki í Pepsi-Max deildinni og níu leiki í Lengjudeildinni.

Haukum var spáð öðru sæti í spá Heimavallarins fyrir Lengjudeildina, fyrr í þessum mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.