11.06.20 - 19:43
Brynjar Ingi Erluson
Kolbrún Tinna í Fylki (Staðfest)

Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir spilar í appelsínugulu í sumar

Mynd: Fylkir

Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir spilar í appelsínugulu í sumar

Mynd: Fylkir

Knattspyrnudeild Fylkis tilkynnti í dag nýjan leikmann hjá kvennaliði félagsins en Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir kemur frá Stjörnunni.
Kolbrún er fædd árið 1999 og er varnarmaður að upplagi en hún er uppalin í Fjölni.
Hún gekk til liðs við Stjörnuna árið 2015 og hefur leikið 19 leiki í deild- og bikar með liðinu. Kolbrún á þá 40 leiki að baki með yngri landsliðum Íslands.
Kólbrún lék hluta tímabils með Haukum í Pepsi-deildinni árið 2017 en hún var þá á láni frá Stjörnunni.
Hún er nú gengin í raðir Fylkis og verður hún lögleg fyrir fyrsta leik liðsins gegn Selfyssingum á laugardag.
Komnar til Fylkis:
Eva Rut Ásþórsdóttir frá HK/Víkingi
Íris Una Þórðardóttir frá Keflavík
Katla María Þórðardóttir frá Keflavík
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir frá Stjörnunni
María Eva Eyjólfsdóttir frá Stjörnunni
Sara Dögg Ásþórsdóttir frá Aftureldingu
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen frá Breiðabliki
Stefanía Ragnarsdóttir frá Val
Tinna Harðardóttir frá Breiðabliki
Vesna Elísa Smiljkovic frá Val