11.06.20 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Tindastóll fær fimm leikmenn (Staðfest)

Úr leik hjá Tindastóli.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tindastóll hefur fengið fimm nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í 3. deildinni í sumar. Miðjumaðurinn Isaac Owusu Afriyie er kominn frá Víkingi R. og þá hafa fjórir leikmenn komið til liðisins erlendis frá.
Tanner Sica verður áfram hjá liðinu auk þess sem Michael Ford, Victor Borode og Luke Rae hafa bæst í hópinn frá Englandi.
„Við höfðum fjármagn til að fá einn erlendan leikmann en við náðum að fá fjóra og Isaac Owusu Afriyie frá Víkingi. Við þurftm að vera klókir og finna nýjar leiðir til að fá öfluga leikmenn," sagði Jamie McDonough, þjálfari Tindastóls.
„Sum lið í deildinni geta fengið 10-12 leikmenn frítt á láni en við getum það ekki. Næsta félag er 120 kílómetra í burtu. Sum félög hafa marga erlenda leikmenn hjá sér sem búa á svæðinu út af atvinnu og eru hér allt árið um kring. Við getum það ekki. Við þurfum að framleiða okkar leikmenn og byggja í kringum þá."
„Tanner Sica er að fara í sitt þriðja tímabil hér og við erum ánægðir með að fá hann. Við vitum að önnur félög á Íslandi vildu ólm fá hann, þar á meðal tvö félög í næstefstu deild. Ég tel að þetta séu frábær skilaboð varðandi hópinn sem við höfum og það sem við erum að byggja upp að við höfum náð að halda honum. Hann er einn besti leikmaðurinn í deildinni, engin spurning."
„Við höfum einnig fengið þrjá enska leikmenn, Michael Ford, Victor Borode og Luke Rae. Þeir eru allir mjög góðir leikmkenn í þessari deild og hafa nú þegar látið til sín taka hjá félaginu, í búningsklefanum og á æfingavellinum."
Victor og Michael eru fjölhæfir leikmenn sem geta spilað í vörn og á miðju en Luke er ungur framherji.