Fotbolti.net
11.06.25 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

De Bruyne fer í læknisskoðun á morgun

De Bruyne fer í læknisskoðun á morgun
Canon

Mynd: EPA

Kevin De Bruyne hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester City en samningurinn hans rann út eftir tímabilið.
Þessi 33 ára gamli miðjumaður hefur ekki lagt árar í bát og ætlar að spila áfram á hæsta stigi. Félög í MLS deildinni í Bandaríkjunum og frá Sádi-Arabíu höfðu áhuga á honum.

Greint hefur verið frá því að hann sé á leið til Napoli en Fabrizio Romano greinir frá því að hann muni gangast undir læknisskoðun á morgun og í kjölfarið verður hann leikmaður ítalska liðsins.

Romelu Lukaku, leikmaður Napoli og samherji De Bruyne í belgíska landsliðinu er sagður hafa átt sinn þátt í að sannfæra landa sinn um að ganga til liðs við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.