Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. júní 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orðrómar trufluðu Rogers
Mynd: EPA
Morgan Rogers, sóknarmaður Aston Villa, viðurkennir að orðrómar um framtíð hans hafi haft áhrif á hann.

Arsenal, Chelsea, PSG og Manchester United hafa öll áhuga á að fá hann til sín í sumar en hann er metin á um 80 milljónir punda. Hann segist vera mjög einbeittur í dag.

„Þetta var truflandi fyrst. Maður er í óþægilegri stöðu að átta sig ekki á áhuganum. Þegar maður eldist og fær reynslu veit maður að 95 prósent af þessu er bara eitthvað," sagði Rogers.

„Maður heyrir þetta, maður kemst ekki hjá þvi. Maður veit að þetta er þarna en maður verður að nýta það á jákvæðan hátt. Maður reynir bara að spila sinn leik og einbeita sér."

Rogers kom að 26 mörkum í 55 leikjum með Aston Villa á liðnu tímabili. Hann er í HM hópi Englands.
Slapp
banner