Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. júní 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þorleifur sjóðandi heitur í Bandaríkjunum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þorleifur Úlfarsson hefur verið að spila mjög vel með Loudoun í USL deildinni í Bandaríkjunum að undanförnu.

Hann var í byrjunarliðinu þegar liðið tapaði gegn Greenville í ULS bikarnum í nótt.

Loudoun var 3-0 undir þegar liðið skoraði sárabótamark í uppbótatíma en Þorleifur lagði upp markið.

Þorleifur hefur komið að fjórum mörkum í síðustu fimm leikjum. Liðið er í 3. sæti riðilsins með þrjú stig eftir þrjá leiki en það er einn leikur eftir og liðið á möguleika á að komast áfram.

Liðið er í 11. sæti Austurdeildarinnar og mætir Rhode Island á heimavelli í næsta deildarleik um helgina. Rhode Island er í 9. sæti, þremur stigum á undan Loudoun.
Slapp
banner