Fotbolti.net
11.07.13 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Roque Santa Cruz til Malaga (Staðfest)

Roque Santa Cruz til Malaga (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paragvæski framherjinn Roque Santa Cruz hefur skrifað undir þriggja ára samning við Malaga.

Santa Cruz yfirgaf herbúðir Manchester City þegar samningur hans rann út á dögunum.

Hann skoraði átta mörk í láni hjá Malaga á síðasta tímabili og hann mun nú leika áfram með spænska félaginu.
Santa Cruz lék með Blackburn og FC Bayern en hann gekk í raðir Manchester City árið 2009.

Santa Cruz náði ekki að festa sig í sessi hjá City en hann spilaði einungis 20 deildarleiki á ferli sínum hjá félaginu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.