11.07.13 - 12:32
Daníel Freyr Jónsson
Wilfried orðinn dýrasti leikmaður í sögu Swansea (Staðfest)

Wilfried Bony.

Mynd: Getty Images

Wilfried Bony.

Mynd: Getty Images
Swansea hefur tilkynnt um kaupin á framherjanum Wilfried Bony frá Vitesse Arhnheim í Hollandi. Kaupverðið er 12 milljónir punda og gerir það hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins.
Hjá Vitesse skoraði Wilfried 46 mörk í 65 leikjum á síðustu tveimur árum, en áður lék han með Sparta Prague í Tékklandi.
Wilfried er 24 ára gamall Fílabeinsstrendingur og þykir hann gríðarlega sterkur líkamlega.
Hafði hann fyrr í sumar verið orðaður við fleiri ensk úrvalsdeildarlið líkt og Newcastle, Everton og Liverpool.
Þessi mikli markaskorari skrifaði undir fjögurra ára samning hjá Swansea og er hann sjöundi leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins í sumar.