11.07.14 - 14:10
Daníel Freyr Jónsson
Jóhann Berg Guðmundsson til Charlton (Staðfest)

Jóhann Berg er kominn til Englands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg er kominn til Englands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson hefur skrifað undir tveggja ára samning hjá Charlton í ensku Championship-deildinni.
Lundúnarfélagið staðfesti þetta nú rétt í þessu, en Jóhann Berg kemur til liðsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans hjá AZ Alkmaar í Hollandi rann út fyrr í sumar.
Jóhann Berg lék 145 leiki með AZ á þeim fimm árum sem hann var hjá félaginu, en hann kom til liðsins einungis 18 ára gamall frá Breiðablik.
Þá á hann að baki 32 landsleiki fyrir hönd Ísland og skoraði meðal annars eftirminnilega þrennu gegn Sviss á síðasta ári.
Vængmaðurinn knái þekkir vel til Englands eftir að hafa búið þar á sínum yngri árum. Spilaði hann um tíma með unglingaliðum Fulham og Chelsea.
Jóhann er sjötti leikmaðurinn sem Charlton fær til sín í sumar.

Heimild: Heimasíða Charlton