Fotbolti.net
11.07.14 - 16:16
Magnús Már Einarsson

Kieran Richardson til Aston Villa (Staðfest)

Richardson lætur finna fyrir sér.

Richardson lætur finna fyrir sér.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur fengið Kieran Richardson til liðs við sig frá Fulham en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.

Richardson er 29 ára gamall en hann getur leikið á vinstri kantinum sem og í bakverðinum.
Nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni sýndu Richardson áhuga eftir fall Fulham úr deildinni en Aston Villa náði að klófesta hann á endanum.

Richardson gekk í raðir Fulham frá Sunderland árið 2012. Hjá Villa mun hann hitta sinn fyrrum stjóra hjá Sunderland, Roy Keane, sem nýlega var ráðinn sem aðstoðarþálfari liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.