11.07.16 - 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Akinfenwa búinn að finna sér nýtt lið (Staðfest)

Akinfenwa mun spila með Wycombe á komandi tímabili

Mynd: Getty Images

Akinfenwa mun spila með Wycombe á komandi tímabili

Mynd: Getty Images
Einn litríkasti karakterinn í enska boltanum, hinn sterki Adebayo Akinfenwa er kominn í nýtt lið. Akinfenwa hefur getið sér gott orð hjá AFC Wimbledon síðustu ár, en nú er hann búinn að gera samning við Wycombe Wanderers.
Hinn 34 ára gamli Akinfenwa er kannski ekki þekktastur fyrir hæfileika sína inn á fótboltavellinum, heldur fyrir það að vera sterkasti fótboltamaður í heimi. Hann er tröll að burðum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Akinfenwa fór í viðtal eftir sinn síðasta leik hjá Wimbledon, þar sem hann óskaði eftir vinnu og nú hefur Wycombe svarað kallinu.
Akinfenwa er framherji og hefur skorað ágætlega mikið á sínum ferli. Hann hefur leikið með liðum eins og Swansea City, Northampton Town og Gillingham og svo Wimbledon, en hjá þessum liðum hefur hann skorað meira en 150 mörk.

I want to thank everybody for all the kind msgs & luv. Im looking forward to the new chapter in my life. Thank u @wwfcofficial #BMO #Blessed
— daRealAAkinfenwa (@daRealAkinfenwa) July 10, 2016
Heimild: Sky Sports