Fotbolti.net
11.07.16 - 16:45
Arnar Daði Arnarsson

Gunnar Gunnarsson aftur í Val (Staðfest)

Gunnar Gunnarsson aftur í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsmenn hafa fengið varnarmanninn, Gunnar Gunnarsson aftur til sín eftir að hann hafi verið hjá Haukum í Inkasso-deildinni fyrri hluta móts á láni.

Gunnar lék átta leiki með Haukum í Inkasso-deildinni og Borgunarbikarnum en hefur nú fengið leikheimild með Val.
Gunnar lék með Val sumrin 2014 og 2015 en hann er 23 ára að aldri.

Valsmenn eru heldur betur að stækka hópinn hjá sér fyrir seinni hlutann á sumrinu en liðið er í undanúrslitum Borgunarbikarsins.

Tveir Danir hið minnsta koma til Vals í félagsskiptaglugganum. Hægri bakvörðurinn Andreas Albech kemur frá Skive og þá hefur einnig veirð greint frá því að miðjumaðurinn Kristian Gaardel komi frá Velje.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.