Fotbolti.net
11.07.16 - 18:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pierre-Emile Höjbjerg til Southampton (Staðfest)

Højbjerg er genginn í raðir Southampton

Højbjerg er genginn í raðir Southampton

Canon

Mynd: Getty Images

Pierre-Emile Höbjerg er genginn í raðir Southampton frá þýska stórveldinu Bayern München. Hinn danski Höjbjerg gerir fimm ára samning við Southampton og mun því væntanlega leika eitthvað með liðinu næstu árin.
Kaupverðið á honum er ekki gefið upp, en samkvæmt enskum fjölmiðlum er það talið vera í kringum 13 milljónir punda.

Höjbjerg sem er tvítugur Dani var á láni hjá Schalke 04 á síðasta tímabili, en hann er núna samningsbundinn Southampton til ársins 2021.

„Auðvitað er ég gríðarlega ánægður, þetta er stórt tækifæri,\" sagði Höjbjerg eftir að kaupin gengu í gegn.

„Ég hlakka til þess að gefa það sem ég get til félagsins. Þeir treysta mér og ég vil sýna þeim að ég sé traustsins verður.\"

Hann er annar leikmaðurinn sem Southampton fær til liðs við sig í sumar, en áður hafði félagið keypt Nathan Redmond frá Norwich.

Heimild: Heimasíða Southampton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.