Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. júlí 2017 17:42
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Ný-Sjálenskur landsliðsmaður í KR (Staðfest)
Betsy Hassett ánægð með KR treyjuna í höndunum
Betsy Hassett ánægð með KR treyjuna í höndunum
Mynd: Twitter síða KR
Ný-Sjálenska landsliðskonan Betsy Hassett er gengin til liðs við KR í Pepsi deild kvenna. Hún kemur frá kvennaliði Ajax en áður hafði hún meðal annars leikið með Werder Bremen og Manchester City.

Betsy er 26 ára gömul og eins og áður segir landsliðsmaður Nýja-Sjálands. Kemur hún til með að styrkja lið KR fyrir lokasprettinn á Pepsi deild kvenna en þar eru sjö umferðir eftir af mótinu.

KR liðið situr sem stendur í 8.sæti deildarinnar með 6 stig og er í bullandi fallbaráttu. Betsy getur spilað sinn fyrsta leik fyrir KR gegn Grindavík þann 10.ágúst en eins og stendur er frí í deildinni vegna Evrópukeppninnar í Hollandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner