Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. júlí 2019 08:30
Magnús Már Einarsson
Manchester United undirbýr tilboð í Milinkovic-Savic
Mynd: Getty Images
Manchester United er að undirbúa 75 milljóna punda tilboð í Sergej Milinkovic-Savic, miðjumann Lazio, en Sky á Ítalíu greinir frá.

Claudio Lotito, forseti Lazio, vill fá 90 milljónir punda fyrir leikmanninn og ætlar ekki að lækka þann verðmiða.

Milinkovic-Savic er sjálfur spenntur fyrir United en gæti þó einnig hugsað sér að taka eitt tímabil til viðbótar hjá Lazio.

Manchester United ætlar að kaupa miðjumann í sumar en Bruno Fernandes, hjá Sporting Lisabon, Sean Longstaff hjá Newcastle og Mario Lemina hjá Southampton hafa einnig verið orðaðir við félagið.

Milinkovic-Savic hefur verið hjá Lazio síðan 2014 en hann hefur skorað 31 mark í 138 leikjum.
Athugasemdir
banner