Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 11. júlí 2019 13:39
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe verðmætasti leikmaðurinn annað árið í röð
Kylian Mbappe er einn besti leikmaður heims
Kylian Mbappe er einn besti leikmaður heims
Mynd: Getty Images
Mathijs de Ligt er í þriðja sæti
Mathijs de Ligt er í þriðja sæti
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe, leikmaður Paris Saint-Germain og franska landsliðsins, er verðmætasti ungi leikmaðurinn annað árið í röð Prime Time Sport og Soccerex sjá um mælinguna.

Leikmenn sem eru 21 árs og yngri eiga möguleika á að hreppa verðlaunin en Mbappe var valinn verðmætastur á síðasta ári en í ár er hann metinn á 234 milljónir punda.

Jadon Sancho, leikmaður Borussia Dortmund í Þýskalandi, er næstur á eftir honum en hann er metinn á 107 milljónir punda og langt á eftir Mbappe.

Mathijs de Ligt hjá Ajax er þá metinn á 67 milljónir punda en listann má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Topp 20 - Verðmætustu leikmenn heims:

1. Kylian Mbappe (Paris Saint-Germain) 234 milljónir punda
2. Jadon Sancho (Borussia Dortmund) 107 milljónir punda
3. Mathijs de Ligt (Ajax) 67 milljónir punda
4. Kai Havertz (Bayer Leverkusen) 66,5 milljónir punda
5. Trent Alexander-Arnold (Liverpool) 66 milljónir punda
6. Joao Felix (Atlético Madrid) 64,5 milljónir punda
7. Gianluigi Donnarumma (AC Milan) 61 milljónir punda
8. Christian Pulisic (Chelsea) 55 milljónir punda
9. Vinicius Junior (Real Madrid) 54 milljónir punda
10. Eder Militao (Real Madrid) 49 milljónir punda
11. Nicolo Zaniolo (Roma) 40 milljónir punda
12. Matteo Guendouzi (Arsenal) 38 milljónir punda
13. Houssem Aouar (Lyon ) 37 milljónir punda
14. Phil Foden (Man. City) 36 milljónir punda
15. Declan Rice (West Ham) 35 milljónir punda
16. Ibrahima Konate (RB Leipzig) 32 milljónir punda)
17. Rodrygo (Real Madrid) 31 milljónir punda
18. Ryan Sessegnon (Fulham) 30 milljónir punda
19. Samuel Chukwueze (Villarreal) 29 milljónir punda
20. Callum Hudson-Odoi (Chelsea) 28,5 milljónir punda
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner