Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 11. júlí 2020 21:59
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir úr leik Brighton og Man City: Sterling fær 9
Raheem Sterling og Rodri voru frábærir í kvöld
Raheem Sterling og Rodri voru frábærir í kvöld
Mynd: Getty Images
Manchester City kjöldró Brighton, 5-0, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en það er Sky Sports sem sér um að gefa einkunnir úr leiknum.

Raheem Sterling var besti maður vallarins með 9 en þeir Rodri, Riyad Mahrez og Kevin de Bruyne fá allir 8.

Slökustu menn vallarins voru þeir Davy Pröpper, Pascal Gross og Bernardo hjá Brighton með 5.

Brighton: Ryan (6), Montoya (6), Dunk (6), Webster (6), Bernardo (5), Bissouma (6), Gross (5), Mooy (6), Propper (5), Trossard (6), Connolly (6).
Varamenn: Lamptey (6), Stephens (6), Maupay (6), Jahanbakhsh (6).

Man City: Ederson (6), Walker (7), Garcia (7), Laporte (7), Mendy (7), Rodri (8), De Bruyne (8), Bernardo Silva (7), Sterling (9), Jesus (7), Mahrez (8).
Varamenn: Foden (6), David Silva (6), Zinchenko (6), Stones (6), Fernandinho 96).
Athugasemdir
banner
banner
banner