11.07.22 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andreas Pereira í Fulham (Staðfest)

Andreas Pereira.

Mynd: Getty Images

Andreas Pereira.

Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Andreas Pereira er genginn í raðir Fulham frá Manchester United.
Það er talið að Fulham borgi í kringum tíu milljónir punda fyrir leikmanninn.
Hinn 26 ára gamli Pereira skrifar undir fjögurra ára samning við Fulham sem vann sér inn sæti í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik á næstu leiktíð.
„Ég er mjög ánægður að vera hérna og ég get ekki beðið eftir því að byrja," segir Pereira.
Pereira gekk í raðir Man Utd þegar hann var 16 ára en hann náði aldrei að sýna að hann væri nægilega góður fyrir liðið. Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Flamengo í Brasilíu.