11.07.22 - 17:48
Brynjar Ingi Erluson
Aston Villa fær sænskan landsliðsbakvörð (Staðfest)

Ludwig Augustinsson

Mynd: EPA

Ludwig Augustinsson

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur gengið frá eins árs lánssamningi við sænska vinstri bakvörðinn Ludwig Augustinsson en hann kemur til félagsins frá Sevilla.
Augustinsson er 28 ára gamall en hann kom til Sevilla frá Werder Bremen fyrir ári síðan.
Hann spilaði 25 leiki fyrir Sevilla á síðustu leiktíð en tókst ekki að taka stöðuna af argentínska leikmanninum Marcos Acuna.
Svíinn er nú mættur til Aston Villa á láni frá Sevilla og mun hann spila með liðinu út leiktíðina.
Augustinsson á 46 leiki og 2 mörk að baki fyrir sænska landsliðið.

Aston Villa can confirm the club has reached an agreement with Sevilla FC for the season-long loan of Ludwig Augustinsson.
— Aston Villa (@AVFCOfficial) July 11, 2022