Fotbolti.net
11.07.22 - 09:43
Elvar Geir Magnússon

Neco Williams frá Liverpool til Forest (Staðfest)

Neco Williams er kominn í Skírisskóg.

Neco Williams er kominn í Skírisskóg.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Nottingham Forest hafa gengið frá kaupum á Neco Williams, 21 árs velskum hægri bakverði Liverpool, og gert við hann fjögurra ára samning.

Williams hjálpaði Fulham að komast upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hann var lánaður til félagsins í janúar.
Forest komst upp í gegnum umspilið og er Williams sjötti leikmaðurinn sem félagið fær til sín í glugganum.

Williams á 21 landsleik fyrir Wales og átti þátt í að hjálpa þjóð sinni að komast í lokakeppni HM í fyrsta sinn í 64 ár.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.