11.07.22 - 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Palace kaupir Doucoure (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Crystal Palace hefur keypt varnarsinnaða miðjumanninn Cheick Doucure frá Lens og greiðir fyrir hann 21 milljón pund.
Doucoure er landsliðsmaður Malí, er 22 ára gamall og hefur leikið átta landsleiki. Leikstíll hans er sagður svipa til leikstils Patrick Vieira sem er í dag stjóri Palace.

Doucoure er þriðji leikmaðurinn sem Palace krækir í sumar. Vængmaðurinn Malcolm Ebiowei og markvörðurinn Sam Johnstone eru einnig komnir.
Doucoure spilaði 34 leiki í frönsku Ligue 1 á síðasta tímabili og hjálpaði Lens að ná sjöunda sæti í deildinni.
„Ég er mjög ánægður, ég er stoltur af því að vera orðinn leikmaður Palace," sagði Doucoure við undirskrift.