11.07.22 - 09:35
Elvar Geir Magnússon
Pogba orðinn leikmaður Juventus (Staðfest)

Leonardo Bonucci er ánægður með að fá Paul Pogba aftur til Juventus.

Mynd: Getty Images

Paul Pogba er formlega orðinn leikmaður Juventus að nýju en hann gengur í raðir félagsins á frjálsri sölu frá Manchester United. Hann fer í treyju númer tíu hjá Juve.
Þessi 29 ára franski landsliðsmiðjumaður vann ítalska meistaratitilinn tvívegis með ítalska stórliðinu áður en hann var keyptur á 89 milljónir punda til United 2016.
Pogba fór í læknisskoðun í Tórínó síðasta föstudag og núna í morgun tilkynnti Juventus formlega um samninginn.
United og Pogba gátu ekki náð samkomulagi um nýjan samning og í byrjun júní staðfesti enska félagið að leikmaðurinn myndi yfirgefa á frjálsri sölu í sumar.
Pogba kom í akademíu United frá Le Havre þegar hann var sextán ára gamall árið 2009 og hjálpaði liðinu að vinna deildabikarinn og Evrópudeildina þegar hann kom aftur til félagsins. Hann náði alls ekki þeim hæðum hjá United sem vonast var eftir.
Pogba á 91 landsleik fyrir Frakkland og lék lykilhlutverk þegar Frakkar unnu HM í Rússlandi 2018.
Juventus endaði í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar annað tímabilið í röð, sextán stigum á eftir AC Milan sem varð meistari. Áður hafði félagið tengt saman níu Ítalíumeistaratitla í röð en Pogba var í lykilhlutverki 2012-2016.

𝗜𝗧'𝗦 𝗢𝗙𝗙𝗜𝗖𝗜𝗔𝗟! @paulpogba is 🔙 in ⚪️⚫️🤩#POGBACK
— JuventusFC (@juventusfcen) July 11, 2022