11.07.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Salernitana fær Erik Botheim frá Krasnodar (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Erik Botheim er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við ítalska félagið Salernitana.
Botheim er 22 ára gamall og kom upp í gegnum yngri landslið Noregs með góðvini sínum Erling Haaland.
Hann var lykilmaður í sterku liði Bodö/Glimt áður en hann var keyptur til Krasnodar fyrir 7,5 milljónir evra í janúar.
Þeir í Krasnodar vissu samt ekki af áformum Vladimir Putin um að ráðast inn í Úkraínu og því má Botheim yfirgefa félagið á frjálsri sölu aðeins sex mánuðum eftir að hafa skrifað undir samning.
Botheim, sem á 14 mörk í 51 landsleik með yngri liðum Noregs, gæti orðið mikill liðsstyrkur fyrir Salernitana sem bjargaði sér á ótrúlegan hátt frá falli í vor.
