11.07.22 - 18:59
Brynjar Ingi Erluson
Wilshere ráðinn til starfa hjá Arsenal (Staðfest)

Jack Wilshere er nýr þjálfari U18 ára liðs Arsenal

Mynd: Arsenal

Fyrrum knattspyrnumaðurinn, Jack Wilshere, er nýr þjálfari U18 ára liðs Arsenal en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Wilshere, sem er þrítugur, er uppalinn hjá Arsenal og spilaði með félaginu til ársins 2018.
Meiðsli settu strik í reikninginn og spilaði hann aðeins 197 leiki fyrir félagið á tíu tímabilum.
Hann fór til West Ham eftir dvölina hjá Arsenal en náði aðeins að spila 19 leiki á tveimur árum. Wilshere tók eitt tímabil með Bournemouth svo áður en hann kláraði ferilinn hjá danska liðinu AGF.
Wilshere hefur reglulega æft með Arsenal þegar hann hefur verið án félags og þá tekið þátt í að þjálfa yngri leikmenn en hann hefur talað um það í viðtölum að þetta væri starfsgrein sem hann væri til í að leggja fyrir sig.
Arsenal tilkynnti svo í dag að hann væri nýr þjálfari U18 ára liðs við félagsins en Mehmet Ali mun taka við U21 árs liðinu.