Fotbolti.net
11.08.14 - 09:42
Magnús Már Einarsson

Hólmar Örn í Rosenborg (Staðfest)

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmar Örn Eyjólfsson skrifaði í dag undir eins árs samning við Rosenborg í Noregi.
,,Þetta kom upp í síðustu viku og þetta hefur gerst mjög hratt. Ég var mjög spenntur að skrifa undir og ég er ánægður,\" sagði Hólmar.

,,Ég veit ekki mikið um liðið. Ég þekki Alexander Söderlund og Morten Gamst Pedersen en ég hef ekki fylgst mikið með norska boltanum.\"

Hólmar er miðvörður og á einn leik að baki með íslenska A-landsliðinu auk þess að hafa leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.

Rosenborg er sem stendur í fimmta sæti norsku úrvalsdeildarinnar en um er að ræða stærsta félagslið landsins.

Hólmar er 24 ára og er uppalinn hjá HK en var áður í herbúðum West Ham þar sem hann var með yngri liðum félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.