Fotbolti.net
11.08.14 - 19:46
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd lánar Angelo Henriquez til Zagreb (Staðfest)

Man Utd lánar Angelo Henriquez til Zagreb (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Króatíska úrvalsdeildarliðið Dinamo Zagreb hefur fengið Angelo Henriquez, framherja Manchester United, á láni út tímabilið en félagið á forkaupsrétt á honum á meðan lánssamningur hans er í gildi.
Henriquez, sem er 20 ára gamall, kom til Manchester United frá Unidversidad fyrir tveimur árum og var sagður einn efnilegasti framherji heims þá en stuðningsmenn félagsins voru þá afar spenntir fyrir leikmanninum.

Honum hefur þó ekki tekist að finna sig á Englandi en hann var á láni hjá Wigan Athletic tímabilið 2012/2013 og á síðasta tímabili var hann hjá Real Zaragoza á Spáni þar sem hann skoraði sex mörk í 25 leikjum.

Manchester United hefur nú lánað Henriquez til Króatíu en Zagreb er á toppnum í Króatíu eftir fyrstu fjórar umferðir deildarinnar.

Hann fær þar tækifæri að spila í Evrópudeildinni með liðinu en hann er sjálfur ánægður með skiptin.

,,Ég er ánægður með að vera kominn til Dinamo. Ég vil standa mig hérna og sanna mig. Dinamo er frábær staður til þess að gera einmitt það,\" sagði Henriquez.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.