Fotbolti.net
11.08.14 - 11:42
Daníel Freyr Jónsson

Mangala til Manchester City (Staðfest)

Eliaquim Mangala.

Eliaquim Mangala.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Eliaquim Mangala frá Porto.

Kaupverðið nemur 32 milljónum punda og er Mangala orðinn einn dýrasti varnarmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Þessi skapheiti miðvörður er sjötti leikmaðurinn sem Englandsmeistararnir kaupa í sumar og fer hann nú sömu leið og miðjumaðurinn Fernando, sem City keypti frá Porto fyrir skömmu.

,,City er topp félag í Evróou. Fyrir mér var þetta mikilvægt skref að yfirgefa Porto og koma hingað til að halda áfram framförum mínum. Ég vil vinna titla og ég tel að hér geti ég það. Ég er metnaðarfullur og því er ég hér,\" sagði Mangala við undirskriftina.

Mangala er 23 ára gamall. Hann spilaði 51 leik með Porto eftir að hafa komið frá Standard Liege árið 2011.

Heimild: Heimasíða Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.