Fotbolti.net
11.08.20 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Aguero líklega ekkert með í Meistaradeildinni

Aguero líklega ekkert með í Meistaradeildinni
Canon

Mynd: Getty Images

Afar ólíklegt er að Sergio Aguero nái að taka einhvern þátt í Meistaradeildinni með Manchester City í þessum mánuði.

Aguero meiddist á hné gegn Burnley í júní og er þessa dagana í Barcelona í endurhæfingu.

Lið Manchester City fór til Lissabon í Portúgal í gær fyrir leikinn gegn Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Meistaradeildin klárast í Portúgal í þessum mánuði en Aguero hefur sagt vinum sínum að afar ólíklegt sé að hann nái að koma við sögu.

Allt bendir til þess að Argentínumaðurinn verði ekki klár fyrr en á næsta tímabili. Í fjarveru hans mun Gabriel Jesus halda áfram að leiða línuna hjá City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.