Franska félagið hefur gengið frá kaupum á kanadíska landsliðsmanninum Jonathan David frá Gent. Þetta kemur fram á heimasíðu Lille.
David, sem er 20 ára gamall, var magnaður með Gent á síðustu leiktíð en hann skoraði 23 mörk og lagði upp 10 í 40 leikjum.
Lille seldi nígeríska framherjann Victor Osimhen til Napoli fyrir 60 milljónir evra á dögunum og var því þörf á öðrum framherja.
David var orðaður við mörg stórlið en Lille tókst að krækja í hann fyrir 31,5 milljónir evra og gerir hann fimm ára samning.
Hann er dýrasti leikmaðurinn í sögu Lille en Renato Sanches var keyptur á síðasta ári fyrir 25 milljónir evra.
Athugasemdir