11.08.21 - 13:41
Ívan Guðjón Baldursson
Bjarni Guðjónsson nýr framkvæmdastjóri KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er búið að ráða Bjarna Guðjónsson sem framkvæmdastjóra. Vesturbæingar þekkja Bjarna vel enda lék hann með KR í fimm ár og var síðar ráðinn sem aðstoðarþjálfari undir stjórn Rúnars Kristinssonar.
Bjarni hefur starfað sem aðalþjálfari U19 liðs Norrköping undanfarin misseri og fagna KR-ingar því að fá hann aftur til sín.
„Við erum mjög ánægð með að geta boðið Bjarna velkominn til KR á ný. Bjarni hefur bæði gegnt hlutverki leikmanns og þjálfara hjá KR við góðan orðstír. Nú höfum við falið Bjarna annað hlutverk, að annast rekstur og leiða uppbyggingu okkar sögufræga félags," sagði Lúðvík S. Georgsson, formaður KR.
Bjarni er með BSc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og þjálfararéttindi frá UEFA. Hann mun hefja störf 1. september og tekur við af Jónasi Kristinssyni.