Fotbolti.net
11.08.21 - 15:26
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Hilmir Rafn til Venezia (Staðfest)

Hilmir Rafn til Venezia (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ítalska félagið Venezia heldur áfram að sanka að sér Íslendingum og var að bæta Hilmi Rafni Mikaelssyni við hópinn á komandi leiktíð.
Hilmir Rafn er aðeins 17 ára gamall og fer til Ítalíu á eins árs lánssamningi. Samningnum fylgir kaupréttur sem Feneyingar geta nýtt sér næsta sumar.

Hilmir Rafn er afar efnilegur framherji sem stimplaði sig vel inn í meistaraflokk Fjölnis í sumar með 4 mörkum í 13 leikjum eftir að hafa gert frábæra hluti með 3. flokki.

Þar að auki skoraði Hilmir tvö mörk í tveimur leikjum með U19 liði Íslands í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.