11.08.21 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Matias Vina keyptur til Roma (Staðfest) - Leysir Spinazzola af hólmi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Roma er búið að staðfesta komu úrúgvæska varnarmannsins Matias Vina frá Palmeiras.
Roma greiðir um 13 milljónir evra fyrir Vina sem er vinstri bakvörður að upplagi en getur einnig leikið sem miðvörður og kantmaður. Sú upphæð getur hækkað með góðum frammistöðum.
Vina er 23 ára gamall og á 16 landsleiki að baki fyrir Úrúgvæ. Hann fær treyju númer 5 hjá Roma.
Jose Mourinho tók við Roma í sumar og verður áhugavert að sjá hvernig liðinu mun ganga undir hans stjórn. Mourinho gerði frábæra hluti síðast þegar hann var í ítalska boltanum og vann þrennuna með Inter 2010.
Vina á að leysa stöðu Leonardo Spinazzola af hólmi eftir að bakvörðurinn meiddist illa á Evrópumótinu í sumar.