11.08.21 - 09:24
Elvar Geir Magnússon
Thomas Mikkelsen í dönsku C-deildina (Staðfest)

Thomas Mikkelsen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thomas Mikkelsen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski sóknarmaðurinn Thomas Mikkelsen kvaddi Breiðablik eftir sigurinn gegn Stjörnunni á mánudaginn.
Hann hefur nú samið við danska C-deildarliðið Kolding IF en liðið féll úr B-deildinni á síðasta tímabili.
Ein umferð er að baki í C-deildinni og tapaði Kolding sínum fyrsta leik á tímabilinu.

Mikkelsen var orðaður við Fredericia en er nú kominn til Kolding.
Mikkelsen er 31 árs gamall og hefur spilað með Blikum síðustu fjögur tímabil. Hann hefur reynst liðinu afskaplega vel og skorað 51 mark í 75 leikjum í deild- og bikar.
„Hann er frábær einstaklingur, persóna og maður. Hann er sterkur í hóp. Við erum ekki bara að missa frábæran framherja heldur frábæran einstakling og manneskju. Það gefur augaleið að það er mikið högg," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks.